Magnað kartöflumeðlæti frá Lækninum

mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

„Það er morgunljóst að kartöflur og ostur passa ótrúlega vel saman,“ segir hinn eini sanni Læknir í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson. Ragnar kættist á dögunum þegar frétt birtist um að væntanlegur væri á markað nýr íslenskur ostur. Um er að ræða ostinn Tind sem er óðalsostur sem fær að þroskast í 12 mánuði. 

„Mér finnst sérstaklega gaman að nota svona osta í matargerð. Ég komst á bragðið með þetta þegar ég bjó í Svíþjóð. Þar kynntist ég osti  Västerbotten  sem mér finnst mjög ljúffengur og finnst gott að nota, t.d. í gratín. Hann fær einmitt að þroskast í nokkra mánuði eins og Tindur  sem er líka þeim kostum gæddur að bráðna vel.“

„Faðir minn á heiðurinn af þessari uppskrift  en hann er mikill unnandi kartaflna, eiginlega sama hvernig þær eru eldaðar. En þegar maður veltir þeim upp úr hvítlauksolíu og osti  þá er maður að miða á stjörnurnar.“

Ljúffengir ofnbakaðir kartöflustaflar með hvítlauksolíu og 12 mánaða svörtum Tindi úr Skagafirði

Fyrir sex

  • 500 g kartöflur
  • 6 msk. hvítlauksolía
  • 200 g svartur Tindur (eða Tindur, Búri eða t.d. Cheddar)
  • salt og pipar
  • timjan til skrauts

Þetta er auðvitað sára einföld uppskrift  en það er oft þannig  einfalt og sérlega ljúfengt.

Ostinn nálgaðist ég í Ostabúðinni á Skólavörðustígnum. En mér skilst að hann komi ekki í almenna sölu fyrir en eftir áramótin. Fram að þeim tíma má að sjálfsögðu nota venjulegan Tind  hann gefur þessum ekkert eftir þó svo hin svarti hafi aðeins dýpri karakter. Þá má að sjálfsögðu líka prófa Búra eða cheddar. Það myndi án efa slá í gegn þar sem allir þessir ostar eiga það sameiginlegt að bráðna vel!

Aðferð:

  1. Skerið kartöflurnar niður heldur þunnt. Auðvitað má gera það með mandólíni  en það breytir í raun ekki miklu.
  2. Kartöflunum er svo velt upp úr hvítlauksolíu. Saltað og piprað.
  3. Svo er það aðalleikarinn. Þetta er fantagóður ostur  bragðmikill en mjúkur á bragðið.
  4. Svo er bara setja fallega svuntu á föður sinn og fá hann til að saxa ostinn í smáa bita.
  5. Svo er bara að raða upp kartöfluskífunum upp, gæta sína að dreifa ostinum á milli laga.
  6. Aðalmálið er að láta kartöflustaflana halda jafnvægi. Skreyta með timjan.
  7. Svo er bara að baka kartöflurnar í þrjú kortér við 180 gráðu hita.
  8. Svo er lítið að annað að gera en að gæða sér á þessu sælgæti!
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert