Skúffukakan hennar Svövu

mbl.is/Svava Gunnars

„Ég sit við eldhúsborðið með þriðja kaffibolla dagsins og er að fara í gegnum uppskriftir sem mig langar að prófa. Krakkarnir sofa alltaf fram yfir hádegi um helgar og mér þykir svo notalegt að læðast fram, kveikja á útvarpinu og byrja daginn rólega,“ segir Svava Gunnarsdóttir á Ljúfmeti & lekkerheit sem er í bullandi vetrarrómantík þessa dagana.

„Um daginn bakaði ég þessa skúffuköku eftir uppskrift frá Mitt Kök sem var æðisleg og myndi sóma sér vel með helgarkaffinu. Ég má því til með að mæla með henni á þessum rigningardegi.“

mbl.is/Svava Gunnars

Skúffukaka

  • 225 g smjör
  • 2 dl mjólk
  • 5 egg
  • 4 ½ dl sykur
  • 1 ½ msk. vanillusykur
  • 1 ¼ dl kakó
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 6 dl hveiti

Glassúr

  • 75 g smjör
  • ¾ dl sterkt kaffi
  • ½ dl kakó
  • 1 ½ msk. vanillusykur
  • 5 dl flórsykur

Yfir kökuna

  • 1 dl kókosmjöl

Hitið ofninn í 175° og klæðið ofnskúffu með bökunarpappír.

Bræðið smjörið, blandið mjólkinni saman við og leggið til hliðar. Hrærið egg og sykur saman þar til blandan er ljós og létt. Sigtið vanillusykur, kakó, lyftiduft og hveiti út í eggja- og sykurblönduna. Bætið smjör- og mjólkurblöndunni saman við og hrærið saman í slétt deig. Setjið deigið í formið og bakið í miðjum ofni í um 20 mínútur.

Glassúr: Bræðið smjörið í potti og hrærið kaffi, kakó, vanillusykur og flórsykur út í. Látið mesta hitann rjúka úr kökunni áður en glassúrinn er settur yfir (best að setja hann yfir kökuna þegar hún er volg). Endið á að strá kókosmjöli yfir.

mbl.is/Svava Gunnars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert