Veitingastaðurin Pure Deli hefur opnað í Gerðarsafni í Kópavogi, en staðurinn er jafnframt í Urðarhvarfi þar sem hann hefur notið mikilla vinsælda meðal hverfisbúa. Boðið er upp á spennandi og hollan mat og fær glerskálinn frægi í byggingunni að njóta sín vel innan um smekklega hönnun. Verður þetta að teljast töluverður hvalreki fyrir Hamraborgina og Kópavogsbæ, en það eru þau Jón Arnar Guðbrandsson og Ingibjörg Þorvaldsdóttir sem eiga staðinn og standa þar vaktina eins og þeim einum er lagið.