Hinar sívinsælu Svövu-Sörur

mbl.is/Svava Gunnars

Kona nokkur hafði orð á því að sér þættu jólin alveg ómöguleg ef hún bakaði ekki sörur. Við hér á Matarvefnum erum hjartanlega sammála því og bökuðum því sexfalda uppskrift að þessu sinni.

Þessi uppskrift þykir með þeim betri enda er það Sava Gunnarsdóttir á Ljúfmeti & lekkerheit sem á heiðurinn að henni. 

Sörur að hætti Svövu

(uppskriftin gefur 60-70 kökur)

  • 200 g möndlur
  • 180 g flórsykur
  • 3 eggjahvítur
  • salt á hnífsoddi

Hitið ofninn í 180°. Malið möndlurnar fínt í matvinnsluvél og blandið flórsykrinum saman við. Stífþeytið eggjahvíturnar með saltinu þar til hægt er að hvolfa skálinni án þess að hvíturnar renni úr. Blandið möndlunum og flórsykrinum varlega saman við með sleikju. Setjið deigið í sprautupoka eða notið teskeiðar og setjið á bökunarpappír. Bakið í ca. 12 mínútur.

Krem

  • 5-6 msk. síróp (velgt)
  • 6 eggjarauður
  • 300 g smjör
  • 2 msk. kakó
  • 2 tsk. kaffiduft (instant-kaffi sem ég myl fínt í mortéli)

Velgið sírópið. Þeytið eggjarauðurnar þar til þær eru orðnar kremgular og þykkar. Hellið sírópinu þá í mjórri bunu saman við og þeytið á meðan. Síðan er mjúku smjöri bætt í og þeytt á meðan. Bætið kakó og kaffi út í og hrærið vel saman. Látið kremið kólna í ísskáp í 1-2 klst. áður en það er sett á kökurnar.

Setjið kremið í sprautupoka og sprautið því á sörubotnana. Notið skeið til að slétta úr kreminu þannig að það þynnist við kanntana. Kælið kökurnar vel, helst í frysti, áður en þær eru hjúpaðar.

Hjúpur

  • 400 g suðusúkkulaði

Skerið súkkulaðið í bita og bræðið yfir vatnsbaði. Látið kólna aðeins áður en kremhlutanum á sörunum er dýft ofan í.

mbl.is/Svava Gunnars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert