Reese Witherspoon er fram úr hófi hæfileikarík manneskja og nýjasta skrautfjöðurinn í hennar annars skrautfjarðahlaðna hatti er hönnunarfyrirtækið Draper James. Fyrirtækið er skírt í höfuðið á ömmu hennar og afa og hönnunin sækir innblástur sinn til suðurríkjanna þar sem Witherspoon ólst upp.
Witherspoon hefur nú hafið samstarf við Crate & Barrell með sérstaka húsbúnaðarlínu sem er geggjuð en hér gefur að líta nokkra forkunnarfagra hluti úr línunni.