Súkkulaðibitakökur með leynihráefni

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Þessi uppskrift kemur verulega á óvart enda er hráefnalistinn að mestu hefðbundinn fyrir utan hráefni sem kemur manni algjörlega í opna skjöldu.

Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld sem verður spennandi að prófa. 

Súkkulaðibitakökur

  • 200 gr hveiti
  • ½ tsk matarsódi
  • ¼ tsk salt
  • 115 gr smjör við stofuhita
  • 100 gr sykur
  • 90 gr púðursykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 40 gr majónes frá E. Finnsson
  • 80 gr súkkulaðidropar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn 180°C.
  2. Sigtið saman hveiti, matarsóda og salt og leggið til hliðar.
  3. Þeytið saman smjör, sykur, púðursykur og vanilludropa þar til létt og ljóst.
  4. Bætið þurrefnunum saman við og því næst majónesinu.
  5. Vefjið að lokum súkkulaðidropunum saman við.
  6. Skammtið kúfaðar matskeiðar fyrir hverja köku og rúllið upp í kúlu sem þið þrýsið örlítið á þegar hún er komin á bökunarplötuna. Bakið í 18-20 mínútur eða þar til kökurnar fara að gyllast.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert