Grunur um salmonellusmit

Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram …
Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir áprentuðum leiðbeiningum um eldun kjúklinga, sem finna má á umbúðum. Steiki kjúklinginn í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra matvöru, að því er Matfugl segir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Matfugl hefur innkallað ferskan kjúkling vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið segir að þörf sé á frekari rannsóknum til að staðfesta gruninn en þó sé rétt að innkalla vöruna. „Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir áprentuðum leiðbeiningum um eldun kjúklinga.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matfugli. Hún er svohljóðandi:

„Kominn er upp grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna.

Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu 215-18-44-1-06.

Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins er unnið að innköllun vörunar.

Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.

Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir áprentuðum leiðbeiningum um eldun kjúklinga, sem finna má á umbúðum. Steiki kjúklinginn í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra matvöru.

ATH innköllunin á eingöngu við um kjúkling með þessu tiltekna rekjanleikanúmeri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert