Nýjasta Omnom-súkkulaðið er ævintýralegt

mbl.is/Omnom Chocolate

Á hverju ári býr Omnom Chocolate til sérstakt vetrarstykki sem minnir fólk á jólahátíðina. ,,Í ár vildum við draga fram það bragð sem minnir okkur einna helst á íslenska veturinn. Í okkar huga er ekkert vetrarlegra en kaldar nætur, myrkur, kertaljós, hlý föt og drykkir sem ylja,” segir Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður og annar stofnenda Omnom.

„Með þessar hugmyndir að leiðarljósi hófum við að leika okkur í eldhúsinu. Við byrjuðum á því að einblína á kaffi og ýmis krydd sem kynda undir bragðlaukana. Síðan bættum við rúsínum við, sem leiddi okkur að jólaglöggi og úr varð bragðbomba sem hefur fengið nafnið Drunk Raisins + Coffee.”

„Við byrjuðum á því að blanda saman sírópi og safa úr mandarínum sem við hrærðum saman við gæðavanillu frá Madagaskar, Ceylon-kanil ásamt indverskri kardimommu. Til þess að fullkomna blönduna bættum við dassi af austurrísku rommi í uppskriftina,” útskýrir Kjartan.

Rúsínurnar fengu að marinerast í mánuð áður en þær voru þurrkaðar og handskornar niður í litla bita og síðan dreift ofan á sjálft súkkulaðið (engar áhyggjur, það er ekkert áfengi í súkkulaðinu).

Súkkulaðið var búið til úr kakóbaunum frá Tansaníu en finna má keim af apríkósum, heslihnetum og rúsínum í baununum. Síðan var brasilísku kaffi bætt við súkkulaðið til að gefa því extra jólakeim og að lokum íslenskri mjólk.

Þess má geta að Omnom styrkir dýraverndunarfélagið Villiketti með sölu á vetrarstykkinu, Drunk Raisins + Coffee í ár. Vetrarsúkkulaði Omnom er komið í verslanir og er einungis til í takmörkuðu upplagi, að því að fram kemur í fréttatilkynningu. 

mbl.is/Omnom Chocolate
mbl.is/Omnom Chocolate
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert