Búðu til þinn eigin heimilisilm

Sítrónur á suðu munu færa góðan ilm í húsið.
Sítrónur á suðu munu færa góðan ilm í húsið. mbl.is/Maria Siriano

Það jafnast ekkert á við vel ilmandi heimili og það má auðveldlega kalla það fram án búðarkeyptra ilmspreyja. Við mælum með næst þegar þú ert að ganga frá eftir matinn eða jafnvel stendur í þrifum að prófa þetta hér.  

Settu nokkrar sítrónusneiðar eða annað sem heillar í pott og láttu sjóða í vatni. Það mun fylla húsið unaðslegri angan á meðan þú sinnir öðrum húsverkum.

Gott er að setja kanilstöng eða annað sem minnir á jólin nú á aðventunni. Já, eða smá greni. 

Ekki gengur að hafa óþef á heimilinu.
Ekki gengur að hafa óþef á heimilinu. bubblews.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert