Segist búinn að finna bestu súpu á Íslandi

Súpan sem Albert var svo ánægður með.
Súpan sem Albert var svo ánægður með. mbl.is/Albert Eiríksson

Ef einhver veit sínu viti þegar kemur að mat er það klárlega Albert Eiríksson og þegar Albert úrskurðar að hann sé búin að finna bestu súpu á Íslandi þá leggjum við við hlustir. 

Kemur í ljós að Albert fór á Pure Deli í Kópavoginum og fékk sér kókoskarrýkjúklingasúpu sem hann var líka svona agalega ánægður með. 

„Sætabrauðsdrengirnir borðuðu saman á Pure Deli í Listasafni Kópavogs (við hliðina á Salnum) fyrir jólagleðitónleikana og ég verð nú að deila því með ykkur að þar fæst besta súpa á Íslandi. Kókoskarrýkjúklingasúpa sem er borin fram með ristuðu súrdeigsbrauði og heimagerðu pestói. Þessi súpa toppar allar súpur og þið bara verðið að fara og smakka hana.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert