Heimagerður piparkökuís með saltkaramellusósu

mbl.is/Eva Laufey

Jólaísinn er að margra mati burðarverkið í góðri hátíðarveislu. Og þar erum við sammála. Ísinn setur punktinn yfir i-ið ef svo má að orði komast og því borgar sig að vanda valið vel þegar kemur að vali á ís. 

Eva Laufey á þessa uppskrift sem hún segir að byggi í grunninn á uppskrift frá tengdamóður hennar sem sé ótrúlega góður. Hún hafi ákveðið að bæta piparkökunum við og sjái ekki eftir því. 

„Piparkökur eru algjört lostæti og eru sérstaklega góðar í þennan ís, en þið getið auðvitað bætt t.d. súkkulaði eða karamellu út í ísinn. Ég mæli þó með að þið prófið þessa uppskrift, silkimjúkur ís og „crunch“ af piparkökunum. Ég bauð upp á salta karamellusósu með
ísnum, það er miklu einfaldara að útbúa eigin karamellusósu en ykkur grunar,“ segir Eva Laufey.

Matarblogg Evu Laufeyjar er hægt að nálgast HÉR.

Heimagerður piparkökuís með saltkaramellusósu

Fyrir 6 – 8

Jólaísinn

  • 10  eggjarauður (ég notaði eggjahvíturnar í marengsbotna)
  • 10 msk. sykur
  • 1 tsk. vanilla extract eða vanillusykur
  • 400 ml rjómi, þeyttur
  • 250 g piparkökur (myljið kökurnar)

Aðferð:

  1. Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn þar til blandan verður létt og ljós.
  2. Bætið vanillu og piparkökumylsnu út í eggjablönduna og hrærið vel saman.
  3. Þeytið rjóma og blandið honum varlega saman við með sleif.
  4. Hellið blöndunni í form og frystið í lágmark sólarhring.

Berið ísinn gjarnan fram með saltaðri karamellusósu.

Söltuð karamellusósa

  • 150 g sykur
  • 4 msk. smjör
  • 1 dl rjómi
  • sjávarsalt á hnífsoddi

Aðferð:
1. Bræðið sykur á pönnu við vægan hita, best að hafa alls ekki háan hita og fara hægt af stað.
2. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum.
3. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er orðin þykk og fín.
4. Í lokin bætið þið saltinu saman við.
Leyfið sósunni að kólna alveg áður en þið hellið henni yfir ísinn. 

mbl.is/Eva Laufey
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert