Matur
| mbl
| 19.12.2018
| 22:05
Hin sívinsæla Madeirasósa
Klassísk frönsk sósa með kjötsoði, piparkornum og madeira víni. Samkvæmt hefðinni er hún yfirleitt notuð með nautakjöti eða kjúkling en að sjálfsögðu má nota hana með öllum mat.
Madeirasósa
- 600 ml dökkt kjötsoð
- 100 ml madeira
- smjörbolla (40 gr smjör/40 gr hveiti)
- 1 tsk soya sósa
- 1 tsk góð sulta
- 1/2 tsk Worchehestershire sósa
- 50 ml rjómi
- salt
- pipar
Aðferð:
- Fyrst hellið þið 50 ml af Madeira á pönnuna sem kjötið var steikt á til að ná öllu góðgætinu sem varð til við steikinguna.
- Hitið 600 ml af heimagerðu kjötsoði eða notið teninga.
- Þykkið með smjörbollu (bræða smjör á pönnu, hellið hveiti saman við og hrærið í bollu) og bætið svo soðinu við. Þeytið vel á meðan.
- Saltið og piprið og smakkið til með sultu, soya og Worchestershire sósu.