Nýtt morgunkorn með ávaxtabragði

Við sjáum Lucky Charms með ávaxtabragði árið 2019.
Við sjáum Lucky Charms með ávaxtabragði árið 2019. mbl.is/General Mills

Það virðist ekkert lát á nýjum bragðtegundum í morgunkornum á komandi ári. Við sögðum nýverið frá þrem nýjum morgunkornum frá Kellogg´s sem munu verða fáanlegar í byrjun ársins 2019. En General Mills sem framleiða hið sívinsæla Lucky Charms eru einnig búnir að kynna til leiks nýtt bragð.

Þeir sem hafa smjattað á Lucky Charms vita að litríku sykurpúðarnir eru það sem allir sækjast eftir, þar sem hitt er afar bragðlaust og dauft. En ekki lengur, því nú mun morgunkornið finnast með ávaxtabragði og sykurpúðarnir eru ekkert á förum því þeir verða á sínum stað í hverjum pakka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert