Lúxusmorgunverður sem toppar daginn

Morgunverður sem sprengir alla skala.
Morgunverður sem sprengir alla skala. mbl.is/Columbus Leth

Hollur morgunverður sem sprengir í þér bragðlaukana, er það ekki eitthvað sem við viljum ofan á brauð? Það er nefnilega alls ekkert samasem merki á milli þess að hollt sé óspennandi – alveg þveröfugt í þetta skiptið. Megum við bjóða ykkur góðan daginn með avocado, spínati, truffluolíu og parmesan ofan á súrdeigsbrauð?

Bragðlaukssprengja í morgunmat (fyrir 4)

  • 2 þroskaðir avocado
  • ½ sítróna
  • Salt og pipar
  • 50 g spínat
  • ¼ búnt púrrulaukur
  • ¼ dillbúnt
  • 50 g parmesan
  • 4 súrdeigsbrauðsneiðar
  • Truffluolía

Aðferð:

  1. Maukið avocado með gaffli og kreistið sítrónusafa yfir. Smakkið til með salti og pipar.
  2. Blandið saman í skál spínati, púrrulauk og dilli. Rífið niður nokkrar breiðar parmesan-flögur og blandið saman við salatið.
  3. Ristið brauðið.
  4. Dreifið avocado-blöndunni á brauðið og setjið salatið þar ofan á. Dreypið truffluolíu yfir sneiðarnar og jafnvel smá meira af kryddjurtunum ef vill.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert