Ofureinfalt sveppa-carpaccio

Nammi namm! Sveppa-carpaccio er frábær forréttur.
Nammi namm! Sveppa-carpaccio er frábær forréttur. mbl.is/Mainlifestyle.dk

Carpaccio með sveppum og tómatsalsa – það er eitthvað sem mun falla vel í kramið hjá gestum og gangandi. Og ofan í kaupið þá tekur það enga stund að græja og er ofur einfalt í framkvæmd. Það eru sem sagt bara plúsar en engir mínusar í þessari uppskrift.

Ofureinfalt sveppa-carpaccio (fyrir 4)

  • 250 g sveppir
  • 2 msk. ferskur sítrónusafi
  • 1 rauður chili
  • 2 tómatar
  • Fersk basilika
  • 1 msk. balsamik
  • 3 msk. ólífuolía
  • Salt og pipar
  • Nýrifinn Prima Donna-ostur

Annað:

  • Brauð

Aðferð:

    1. Skolið og hreinsið sveppina og skerið þá í mjög þunnar sneiðar.
    2. Hellið helmingnum af sítrónusafanum á diskinn sem þú ætlar að bera réttinn fram á. Leggið sveppasneiðarnar á diskinn og restina af sítrónusafanum þar yfir.
    3. Tómatsalsa: Skerið chili, tómata og basiliku fínt. Blandið balsamik, ólífuolíu salti og pipar saman við tómatblönduna.
    4. Leggið tómatsalsað ofan á sveppina og rífið Prima Donna þar yfir. Skreytið með basiliku-blöðum.
    5. Berið sveppa-carpaccio fram með góðu brauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert