Það er algjörlega argasti misskilningur að pítsur séu eitthvert sóðafæði sem enginn geti orðið grannur af því að borða. Hér er lykillinn algjörlega fólginn í því hvernig brauð er verið að nota í botninn og hvað er sett ofan á pítsuna.
Hér höfum við glimrandi girnilega pítsu sem búið er að hrúga á alls konar guðdómlegu grænmeti. Reynið jafnframt að velja fitusnauðari osta og ekki hika við að kaupa fitulítinn ost og rífa sjálf niður. Ekki setja sykur í pítsusósuna og ekki er verra að gera hana frá grunni.
Áleggið skal vera nær eingöngu grænmeti. Prófaðu þig áfram með grænmeti og ekki klikka á því að salta og pipra matinn til að ná fram sem mestu og bestu bragði.
Gerðu sjálf/ur þína hvítlauks- og/eða chiliolíu og notaðu til þess góða olíu í grunninn, ekki hefðbundna steikingarolíu.
Í þessari pítsu er notast við súrdeigsbotn, pítsusósu, silkiskorna skinku, mozzarela-ost og basillauf. Afskaplega einfalt en fyrir þá sem vilja prófa það allra besta og skemmtilegasta þá er þessi pítsa hér úr smiðju Coocoo´s Nest og er vinsælasta pítsan þar:
Það er því algjör óþarfi að sleppa pítsunni þótt það sé eitthvert átak í gangi, bara velja skárra álegg og vera í stuði!