Nýr íslenskur næringardrykkur á markað

mbl.is/MS

Næring+ nýr næringardrykkur frá MS - millimál í fernu

Næring+ er nýr drykkur frá MS sem væntanlegur er í verslanir um land allt á næstu dögum. Um er að ræða orku- og próteinríkan drykk sem hentar vel þeim sem þurfa að þyngjast eða sporna við þyngdartapi. Næring+ er vítamín- og steinefnabættur og getur m.a. hentað eldra fólki, en með aldrinum minnkar oft matarlystin þó að þörf fyrir orku, prótein, vítamín og steinefni sé enn fyrir hendi. Til að fyrirbyggja vöðvarýrnun og þyngdartap hjá eldra fólki er mikilvægt að það neyti orku og próteina í ríkum mæli og hentar einnig þeim sem vilja handhægt orku- og próteinríkt millimál.

„Við þróun á Næringu+ var tekið mið af nýjum ráðleggingum um mataræði eldra fólks. Sérstök áhersla var lögð á að hafa drykkinn eins prótein- og orkuríkan og hægt var án þess að láta það bitna á bragðgæðum vörunnar,“ segir dr. Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri MS.

Næring+ fæst í 250 ml fernum með súkkulaðibragði og kaffi- og súkkulaðibragði. Þrátt fyrir að drykkurinn sé orkuríkur er gætt að því að stilla magni viðbætts sykurs í hóf og engin sætuefni eru í drykknum. Búið er að kljúfa allan mjólkursykur (laktósa) í Næringu+, þannig að drykkurinn á að henta öllum sem hafa laktósaóþol. Drykkurinn er góður valkostur til að hjálpa við að tryggja næga orkuinntöku og uppfylla prótínþörf en best er að nota hann milli mála og gæta jafnframt að því að fá reglulegar máltíðir. 

Næring+ með súkkulaðibragði.
Næring+ með súkkulaðibragði. mbl.is/MS
Næring+ með kaffi- og súkkulaðibragði.
Næring+ með kaffi- og súkkulaðibragði. mbl.is/MS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert