Eldhús í Stokkhólmi sem slær enga feilnótu

Svo ótrúlega bjart, fagurt og stílhreint. Liturinn á veggjunum er …
Svo ótrúlega bjart, fagurt og stílhreint. Liturinn á veggjunum er sá sami og á innréttingunni. Kemur virkilega vel út. mbl.is/Nordic Design

Stundum, bara stundum, rekst ég á eldhús sem eru svo vel heppnuð að mig langar helst að hrópa húrra. Við erum ekki að tala um fullkomnun enda vitum við að það væri ekkert gaman. En góðar hugmyndir og snjallar útfærslur er eitthvað sem er svo gaman að skoða og þegar fólk þorir að vera aðeins öðruvísi, þá er hátíð!

Þetta forkunnarfagra eldhús er stórkostlegt. Takið eftir því hvernig innréttingin er máluð í sama lit og veggirnir. Kemur brjálæðisleg vel út og er vel þess virði að leika eftir.

Fleiri myndir af íbúðinni er hægt að nálgast HÉR.

Heimild: Nordic Design

Það er ekkert út á þetta eldhús að setja. Bara …
Það er ekkert út á þetta eldhús að setja. Bara alls ekki neitt. mbl.is/Nordic Design
Skáparnir ná upp í loft og búið er að smíða …
Skáparnir ná upp í loft og búið er að smíða í kringum þá alla. Engin opin rými, fullkominn frágangur. mbl.is/Nordic Design
Hillurnar koma vel út.
Hillurnar koma vel út. mbl.is/Nordic Design
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert