Svalasta vekjaraklukka veraldar!

Hvern dreymir ekki um þessa stórkostlegu vekjaraklukku sem er með innbyggðri kaffivél. Og við erum ekki að tala um neitt hversdagssull heldur hágæða uppáhellingu sem fær kaffiunnandann til að stynja af gleði (eða eitthvað í líkingu við það).

Þessi magnaða klukka/kaffivél er að slá í gegn svo um munar en fyrst var fjallað um tilurð hennar á Matarvefnum fyrir rúmu ári þegar fram fór hópfjármögnun til að koma henni í framleiðslu. Nú er komin vefsíða og verslun og fagurkerar jafnt sem fjölmiðlar fá ekki nóg af þessari snilld.

Gripurinn kostar tæpar 50 þúsund krónur og hægt er að skoða hann nánar HÉR.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert