Kökukallinn sem heimurinn elskar

Mike McCarey er ekki bara listamaður þegar kemur að því …
Mike McCarey er ekki bara listamaður þegar kemur að því að baka og skreyta kökur, hann mikill húmoristi líka. mbl.is/Mike McCarey

Þegar þú telur þig hafa séð allt í kökulist áttu þetta hér eftir. Slíkt handbragð hefur ekki ratað inn á borð til okkar í lengri tíma og varla hægt að lýsa því með orðum hvað við erum að sjá.

Meistarinn á bak við þessa skúlptúra er Mike McCarey sem hefur bakað frá því hann kláraði menntaskóla. Hann hefur gert óteljandi ætileg listaverk fyrir einstaklinga sem og fyrirtæki á borð við Disney, Microsoft og Starbucks og er hvergi nærri hættur. Mike er þekktur innan kökuskreytingabransans sem hálfgerður leiðtogi enda unnið til fjölda verðlauna. Heimasíðuna hans má finna hér og Instagram-síðuna hér.  

Það má varla sjá muninn á alvöruleikfangi og þessari köku.
Það má varla sjá muninn á alvöruleikfangi og þessari köku. mbl.is/Mike McCarey
Barnið bað um bílaköku og þetta varð útkoman – einmitt!
Barnið bað um bílaköku og þetta varð útkoman – einmitt! mbl.is/Mike McCarey
mbl.is/Mike McCarey
Mike er sannkallaður listamaður þar sem smáatriðin eru upp á …
Mike er sannkallaður listamaður þar sem smáatriðin eru upp á tíu. mbl.is/Mike McCarey
mbl.is/Mike McCarey
Hvaða barn myndi ekki vilja þessa köku í veisluna sína?
Hvaða barn myndi ekki vilja þessa köku í veisluna sína? mbl.is/Mike McCarey
Mike með köku í formi spilakassa eins og ekkert annað …
Mike með köku í formi spilakassa eins og ekkert annað sé sjálfsagðara. mbl.is/Mike McCarey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert