Ketó kaka sem reyndist algjörlega frábær

mbl.is/Hanna Þóra

Það er ekkert grín að vera á ketó og þrá bara köku! Hanna er hins vegar búin að leysa það snilldarvel og hér gefur að líta ketó köku sem er algör snilld. Sjálf segir Hanna um kökuna:

Það hefur verið smá erfitt að finna ketó eftirrétt fyrir ketó fólkið í kringum mig. Þessi kaka er mjög einföld og fljótleg. Þar sem ég hef aldrei notað sætuefni áður tók nokkurn tíma að finna þessi í sætuefnafrumskóginum en það tókst. Kakan er góð og einnig dagana á eftir.“

Matarbloggið hennar Hönnu.

Ketó kaka

  • 2 egg
  • 1 dl sæta sem er með sömu áferð og hvítur sykur (nota Xylo Sweet – mynd fyrir neðan)
  • ¼ dl hnetusmjör
  • 50 g smjör
  • ½ dl möndlumjöl
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 3 dl rjómi
  • 1 msk. súkkulaðisíróp (nota Torani chocolate flavoring syrop)
  • ½ tsk. vanilluessens

Verklýsing

  1. Ofninn hitaður í 180°C
  2. Egg og sætan þeytt saman
  3. Smjör og hnetusmjör sett út í – hrært aðeins
  4. Möndlumjöli og lyftidufti bætt við – hrært
  5. Deigið sett í 20 cm smelluform (smjörpappír í botninn) og bakað í u.þ.b. 25 mínútur
  6. Kakan látin kólna
  7. Rjóminn þeyttur og súkkulaðisætunni blandað saman við
  8. Kakan tekin úr forminu og sett á disk
  9. Rjóminn settur ofan á og kakan skreytt með möluðum hnetum og/eða ögn af kakói stráð yfir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert