Fiskur í gómsætri mangó jógúrtsósu

mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

„Ég hef sagt það áður en segi það aftur – mikið er gott að fá góðan fiskrétt. Hráefni sem ég elda ekki nægilega oft en veitir vellíðan og með réttri uppskrift hinn mesti veislumatur. Þessi uppskrift er einföld og fljótleg og í hana má nota hvaða fisk sem er í rauninni. Klikkar aldrei,“ segir hin eina sanna Berglind Guðmunds á GRGS.is um þennan rétt og ef hún segir það þá er þetta eitthvað sem verður að prófa. 

Fiskur í gómsætri mangó-jógúrtsósu

Fyrir 4

  • 700 g þorskur
  • 2 dl létt AB mjólk, t.d. frá Mjólku
  • 2 tsk. karrýduft
  • 2 msk. Patak´s mango chutney
  • Salt og pipar
  • 3 gulrætur
  • 6-8 sveppir
  • 1 laukur
  • feti í kryddolíu, frá Mjólku

Aðferð: 

  1. Hitið olíu á pönnu. Skerið fiskinn í bita og léttsteikið. Kryddið með salti og pipar. Setjið í ofnfast mót.
  2. Skerið lauk, gulrætur og sveppi smátt og steikið upp úr olíu á pönnu þar til grænmetið byrjar að mýkjast. Dreifið úr grænmetisblöndunni yfir fiskinn.
  3. Hrærið saman AB mjólk, karrýdufti og mango chutney. Smakkið til með salti og pipar. Hellið sósunni yfir fiskinn og toppið með fetaosti.
  4. Bakið í ofni við 180° C í 15 mínútur.
mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert