Gulrótakaka með bláberjum og rjómaostakremi

Hver getur slegið hendinni á móti svona líka dásamlegri köku sem hlýtur að vera snarholl fyrst hún inniheldur svona mikið grænmeti? Það getur bara ekki annað verið.

Það er engin önnur en Linda Ben sem á heiðurinn að þessari uppskrift.

Gulrótakaka með bláberjum og rjómaostakremi

  • 5 dl smátt saxaður ananas
  • 5 dl rifnar gulrætur
  • 2 dl smátt saxaðar valhnetur
  • 4½ dl hveiti
  • 1½ tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. matarsódi
  • 3 tsk. kanill
  • ¾ tsk. múskat
  • ¾ tsk. salt
  • 3½ dl púðursykur
  • 1¾ dl grísk jógúrt frá Örnu
  • 1 dl bragðlítil grænmetisolía
  • 3 egg
  • 1 tsk. vanilludropar

Aðferð: 

  1. Kveikið á ofninum og stillið hann á 175ºC.
  2. Kreistið safann mjög vel úr ananasnum, setjið í skál og blandið saman við gulrótum og valhnetum.
  3. Setjið púðursykur, jógúrt, olíu, egg og vanilludropa í skál og hrærið saman. Blandið saman hveitinu, matarsóda, lyftidufti, kanil, múskati og salti í skál og hrærið. Blandið hveitiblöndunni rólega sama við eggjablönduna.
  4. Blandið gulrótablöndunni saman við deigið.
  5. Smyrjið tvö 20 cm form og skiptið deiginu á milli, bakið í um það bil 35 mín. eða þangað til kökurnar eru bakaðar í gegn. Kælið kökuna og útbúið kremið.

Í rjómaostakremið þarft þú: 

  1. 200 g smjörlíki/smjör
  2. 200 g vegan rjómaost (eða annan laktósafrían rjómaost – einfalt er þó einnig að útbúa sjálfur laktósafrían rjómaost, sjá uppskrift hér.
  3. 400 g flósykur
  4. 250 g bláber

Aðferð: 

  1. Hrærið smjörlíkið og rjómaostinn vel saman, bætið svo flórsykrinum varlega saman við. Hrærið vel þangað til kremið verður létt og loftmikið.
  2. Setjið 1/3 af kreminu á milli kökubotnanna og smyrjið restinni svo á toppinn á kökunni og hliðarnar.
  3. Skreytið toppinn og botninn á kökunni með bláberjum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert