Svona er morgunmatur flugfreyjunnar

mbl.is/María Gomez

Flugfreyjur þurfa að vakna á öllum tímum sólarhringsins og þegar það er sérlega snemma, eins og oft vill verða, er nauðsynlegt að hafa góðan morgunverð handbæran sem tryggir orku og vellíðan.

María Gomez á Paz.is þekkir þetta manna best og hér deilir hún atvinnuleyndarmáli sínu.

Morgunmatur flugfreyjunnar

Uppskriftin miðast við 1

  • 1/2 bolli grísk Jógúrt
  • 1 tsk. chia-fræ
  • Lúka af ferskum bláberjum
  • Lófafylli af ávaxtamúslí (Früchte Müsli) frá Rapunzel
  • Ristað lífrænt ræktað kókósmjöl eða kókósflögur frá Rapunzel
  • 3-4 pekan-hnetur
  • Rapunzel döðlusíróp eftir smekk yfir toppinn
  • Um helgar er rosa gott að toppa þetta með súkkulaðikókósbitunum frá Rapunzel sem er hollari útgáfan af Bounty

Aðferð

Byrjið fyrst af öllu á að setja eina tsk. af chia-fræjum saman við 1 msk. af vatni og látið standa í örlitla stund meðan þið takið fram restina af hráefninu og ristið kókósmjöl eða kókósflögur.

  1. Setjið svo jógúrtina í skál og hrærið útbleyttu chia-fræjunum og bláberjunum rólega saman við
  2. Setjið svo múslíið næst yfir og toppið með ristaða kókósinum
  3. Myljið svo pekan-hneturnar með fingrunum yfir allt og berið fram með döðlusírópinu sem er sett efst ofan á allt heila klabbið eins og sósa
  4. Um helgar er svo gott að skera kókósbitana niður og setja yfir svona spari

Einnig er hægt að setja morgunmatinn í krukkur eins og ég geri hér til að taka með í nesti. En þá er best að setja bara eitt lag í einu og hræra svo öllu saman eftir á.

mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert