Eggjabaka með grænmeti og salami

mbl.is/Silla Páls

Meistari Albert veit hvað hann syngur og hér er hann með eggjaböku sem er algjör snilld – bæði í morgunmat og síðan bara allan daginn og langt fram á kvöld. Eggjakökur eru nefnilega algjör snilld. Snarhollar og dásamlega bragðgóðar.

Matarbloggið hans Alberts er hægt að nálgst HÉR

Eggjabaka með grænmeti og salami 

Það er mikill kostur við eggjabökur að hægt er að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum, hlutföllin skipta heldur ekki öllu máli. Eggjabökur eins og þessi eru alveg jafn góðar þótt þær séu ekki borðaðar beint úr ofninum. Meðlætið getur verið sumarlegt salat og sinnepssósa (majones, sinnep og örlítið hunang). 

Eggjabaka með grænmeti og salami

  • 3-4 plötur smjördeig, eftir stærðinni á forminu sem þið notið
  • 1 b. saxaður blaðlaukur
  • 1 haus spergilkál, skorinn í litlar greinar
  • 2 paprikur, rauð og appelsínugul, saxaðar
  • 2-3 msk. olía
  • ½ dós Piparrjómaostur
  • 5-6 sneiðar salami skorin í bita (eða skinka)
  • 6-8 egg
  • 1 dl rjómi
  • 2-3 tómatar skornir í sneiðar
  • 1 camembert-ostur skorinn í sneiðar

Aðferð:

  1. Fletjið smjördeigið út og leggið í bökuform.
  2. Léttsteikið blaðlauk, spergilkál og papriku í olíu á pönnu í nokkrar mínútur, grænmetið á ekki að brúnast.
  3. Hrærið rjómaostinum saman við grænmetið og hellið öllu yfir smjördeigið.
  4. Dreifið salami yfir.
  5. Þeytið saman í skál egg og rjóma og hellið yfir.
  6. Raðið tómatsneiðunum ofan á og síðan camembert-ostinum.
  7. Stráið svörtum pipar yfir. Bakið í 40 mínútur við 180°C.
mbl.is/Silla Páls
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert