Er uppþvottavélin þín stútfull af óhreinindum?

mbl.is/IKEA

Við fáum ekki nóg af góðum ráðum um hvar og hvernig megi taka betur til hendinni heima fyrir. Það eru fleiri í sömu sporunum því í Ástralíu er hópur sem kallast „Mums who Clean“, og þar eru félagar með allt á tandurhreinu.

Okkur, sem töldum okkur vera með þrif á uppþvottavélinni alveg upp á tíu, hefur yfirsést eitt mjög mikilvægt atriði. Það er gúmmílisti inni í vélinni sem geymir skítugt leyndarmál, en hann spornar við því að vatnið leki niður á gólf. Þessi listi er haugaskítugur!

Ef við þrífum ekki þennan lista reglulega er hætta á að vélin fari að lykta, fyrir utan hvaða bakteríur grassera þar á meðan. Mælt er með því að þrífa þennan lista á tveggja vikna fresti því þörfin er eftir því. Gott er að nota gamlan tannbursta í verkið og fyrst við erum að þessu á annað borð er upplagt að taka síuna sem liggur í botni vélarinnar í leiðinni.

Þið ættuð að prófa að taka gúmmílistann af í uppþvottavélinni …
Þið ættuð að prófa að taka gúmmílistann af í uppþvottavélinni og sjá hvað hann hefur upp á að bjóða. mbl.is/Mums who Clean_Facebook
Þarna safnast allur skíturinn og vert er að þrífa listann …
Þarna safnast allur skíturinn og vert er að þrífa listann á tveggja vikna fresti. mbl.is/Mums who Clean_Facebook
Upplagt að skella síunni með fyrst við erum byrjuð að …
Upplagt að skella síunni með fyrst við erum byrjuð að skola og skrúbba á annað borð. mbl.is/Mums who Clean_Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert