Sælgætissvínalund í rjómasósu

mbl.is/Svava Gunnarsdóttir

Það þarf ekkert að orðlengja neitt frekar um þetta gourmet fæði sem komið er úr smiðju hennar Svövu Gunnars á Ljúfmeti & lekkerheitum. 

Svínalundin stendur ávallt fyrir sínu og rjómasósan er til að æra óstöðuga af gleði. 

Svínalund í rjómasósu

(uppskrift fyrir 5-6)

  • 2 svínalundir (ég gleymdi að athuga þyngdina en þær voru í meðalstærð)
  • salt og pipar

Sósa:

  • 5 dl rjómi
  • 2 msk. kálfakraftur
  • 2 msk. dijon-sinnep
  • 2 tsk. salvía (þurrkuð)
  • 1 tsk. hunang
  • nokkrir dropar af sítrónusafa
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið svínalundirnar í um 2,5 cm þykkar sneiðar og kryddið með salti og pipar.
  2. Bræðið smjör og olíu saman á pönnu og steikið kjötið þar til það hefur fengið steikingarhúð á báðum hliðum.
  3. Takið kjötið af pönnunni og leggið til hliðar. Setjið öll hráefnin fyrir sósuna á pönnuna (ekki þrífa hana eftir kjötið!) og látið sjóða saman í nokkrar mínútur.
  4. Leggið kjötið í sósuna og látið sjóða við vægan hita í 5 mínútur.
mbl.is/Svava Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert