Pavlovan sem enginn getur staðist

mbl.is/María Gomez

Góð pavlova stendur ætíð fyrir sínu og hér gefur María Gomez á Paz.is okkur uppskriftina sína sem er sérdeilis girnileg eins og sjá má. María segir að galdurinn við vel heppnaða pavlovu sé að hafa eggin við stofuhita og mala sykurinn ögn í blandara til að hann smjúgi sem best inn í eggjahvíturnar. Svo megi auðvitað ekki gleyma sýru eða Cream of tartar.

mbl.is/María Gomez

Pavlovan sem enginn getur staðist

  • 4 eggjahvítur úr stórum eggjum (við stofuhita)
  • 200 g súperfíngerður sykur (malaður á pulse).
  • 1 tsk. hreint vanillu-extract.
  • ½ tsk. cream of tartar eða 1 tsk. af sítrónusafa, borðediki eða eplaediki (bara eitt af þessu). Ég notaði Cream of tartar.
  • 1 tsk. kartöflumjöl (ekki sleppa)

Ofan á: 

  • Drekaávöxtur, kiwi, bláber, brómber, banani
  • ½ lítri rjómi
  • Vill-súkkulaðihúðuð hindber eða bláber (fást í Krónunni og fullkomna kökuna)
  • Vill-hreint mjólkursúkkulaði
  • Vill-skógarberjahlaup
  • 2 jarðarberjasmáskyr

Aðferð:

  1. Byrjið á að hita ofninn í 175 C° blástur.
  2. Setjið svo eggjahvítur í hrærivél og byrjið að þeyta á miklum hraða í alveg 5 mínútur (takið tímann).
  3. Á meðan er gott að setja sykurinn í blandarann og stilla nokkrum sinnum á pulse til að mala hann fínna en þó ekki eins fínan og flórsykur.
  4. Setjið svo sykurinn út í eggjahvíturnar meðan þær eru enn að þeytast í tvennu lagi. Gott að láta 30 sek. líða á milli og haldið áfram að þeyta í eins og tvær mínútur í viðbót.
  5. Bætið svo við vanillu-extractinu og þeytið í 1 mínútu í viðbót.
  6. Slökkvið nú á hrærivélinni og setjið Cream of tartar og kartöflumjöl út í og hrærið með sleikju mjög varlega þar til það er komið vel inn í eggjablönduna.
  7. Setjið svo bökunarpappa á plötu og teiknið eins og 23 cm hring.
  8. Setjið svo alla blönduna inn í hringinn og mótið fallegan botn grynnri fyrir miðju. Svona eins og smá dæld í miðjunni.
  9. Stingið nú í ofninn og lækkið hitann strax niður í 95 C°og látið bakast í 90 mínútur.
  10. Þegar 90 mínútur eru liðnar slökkvið þá á ofninum og látið hana kólna þar inni eins lengi og kostur er. Best yfir heila nótt en annars í ekki minna en 2 klst.
  11. Því lengur því meira seig og sykurpúðaleg verður hún í miðjunni.

Samsetning

  1. Ekki setja á botninn fyrr en rétt áður en á að bera tertuna fram.
  2. Þeytið rjóma og bætið tveimur jarðarberjasmáskyrum út í (þessi pínulitlu) og þeytið vel saman.
  3. Setjið næst rjómann vel ofan á pavlovuna.
  4. Skerið niður ávextina sem þarf að skera og dreifið yfir rjómann.
  5. Setjið svo hlaup og súkkulaðihúðuð bláber yfir á milli berjanna og endið svo á að setja súkkulaðibrot sem standa upp úr rjómanum.
  6. Berið strax fram og njótið í botn.
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert