Frábærar kjúklingabollur með spaghetti

Bollur eru alltaf vinsælar, sama í hvaða formi þær birtast.
Bollur eru alltaf vinsælar, sama í hvaða formi þær birtast. mbl.is/Tasteofhome.com

Þessar mjúku kjúklinga-pestó bollur munu slá í gegn við matarborðið. Hér eru ekki mörg hráefni við höndina en rétturinn er engu að síður bragðmikill. Tilvalið að tvöfalda uppskriftina og setja í frysti til að eiga á þeim dögum þegar lítill tími gefst til að elda.

Frábærar kjúklingabollur

  • 180 g spaghetti
  • ¼ bolli brauðrasp
  • 2 msk. pestó
  • 2 msk. parmesan
  • 1 tsk. hvítlaukssalt
  • 450 g kjúklingahakk
  • 1-1½ marinara-sósa
  • ¼ bolli vatn
  • Fersk basilika og aðeins meira af parmesan ef þess er óskað

Aðferð:

  1. Sjóðið spaghetti samkvæmt leiðbeiningum.
  2. Takið fram stóra skál og blandið saman brauðraspi, pestó, osti og hvítlaukskryddi. Bætið kjúklingahakkinu út í og mótið í litlar bollur. Kjúklingahakk liggur kannski ekki á lausu en þá er annaðhvort hægt að hakka kjúklinginn í þar til gerðri græju eða skera kjötið virikilega smátt. 
  3. Steikið bollurnar á pönnu á meðalhita og snúið við eftir þörfum. Bætið sósunni út í ásamt vatni og leyfið að koma upp að suðu. Lækkið þá hitann og látið malla þar til bollurnar eru steiktar í gegn.
  4. Berið fram með spaghetti og toppið ef til vill með ferskri basiliku og parmesan-osti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert