Pönnusteiktur silungur í hnetuhjúp með smælkikartöflum

mbl.is/Einn, tveir og elda

Þessi uppskrift er í senn afskapleg holl og svo einstaklega bragðgóð. Silungur stendur auðvitað alltaf fyrir sínu en kominn í þennan hnetuhjúp verður hann eitthvað allt annað og enn þá betra. Eiginlega bara hreinræktaður sparimatur ef út í það er farið. 

Smælkið og salatið er síðan sérlega vel valið meðlæti en uppskriftin kemur frá Einn, tveir og elda.

Pönnusteiktur silungur í hnetuhjúp með smælkikartöflum og ávaxtasalati

Fyrir tvo

  • 400 g silungur 
  • 50 g panko-brauðrasp 
  • 50 g hakkaðar heslihnetur 
  • 300 g smælkikartöflur 
  • 50 g salat 
  • 1 grænt epli 
  • olía, salt & pipar

Aðferð:

  1. Setjið smælkikartöflurnar í eldfast mót ásamt „dass“ af olíu, salti og pipar. Hitið ofninn í 200°C og bakið kartöflurnar í 20-30 mínútur.
  2. Skerið silunginn í tvær steikur. Blandið saman brauðraspinum og heslihnetunum í skál og veltið silungnum upp úr blöndunni.
  3. Hitið 2-3 msk. af olíu eða smjöri á pönnu og steikið silungssteikurnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið, byrjið á að snúa roðhliðinni niður.
  4. Skerið eplið niður í bita og blandið saman við salatið. Njótið vel!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert