Við erum hreinlega ekki að komast yfir þetta sjóðheita eldhústrend að mála vegginn í sama lit og eldhúsinnréttinguna. Það er bara eitthvað svo ógnarsvalt við þetta og öðruvísi. Þetta heitir að lita rækilega út fyrir kassann og gott betur.
Það eru meistararnir í Life Kitchens sem eiga heiðurinn að þessu dásamlega fallega eldhúsi og á heimasíðunni þeirra er hægt að sjá urmul fallegra eldhúsa sem ættu að veita innblástur.
Hægt er að nálgast heimasíðu Life Kitchens HÉR.