Mögnuð Mexíkóveisla á pönnu

mbl.is/Svava Gunnarsdóttir

Það er þriðjudagur og það þýðir að það er Mexíkókvöld! Þessi snilldarréttur er svo mikil snilld að það er leitun að öðru eins. Hér er notast við eina pönnu en útkoman er magnþrungin - að mexíkóskum hætti. 

Það er snillingurinn hún Svava Gunnars á Ljúfmeti og lekkerheit sem á þessa uppskrift og hún dásamar uppskriftina mjög. Hún noti venjulega taco-krydd í bréfum en í þetta skiptið hafi hún ekki átt það til og því sé kryddlistinn svona langur. Honum sé því auðvelt að skipta út.  

„Eins er hægt að skipta baununum út fyrir þær baunir sem eru í uppáhaldi, eða bara sleppa þeim. Mér þykja pintobaunir þó passa mjög vel í mexíkóskum mat. Það er eflaust gott að bera réttinn fram með grænmeti og salsa- og/eða ostasósu í tortillum. Ég bar hann bara fram með nachos, salsasósu, heitri ostasósu og sýrðum rjóma, svolítið eins og supernachos. Svo brjálæðislega gott!“ segir Svava og við segjum bara Viva la Mexico!

Tacobaka á pönnu 

  • 1 laukur, hakkaður
  • 1 rautt chillí, fræhreinsað og hakkað
  • 550 g nautahakk
  • 1 tsk. chillí-krydd
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. laukrydd
  • ½ tsk. oregano
  • ½ tsk kúmín
  • ½ tsk. rauðar piparflögur (red pepper flakes)
  • ½ tsk. paprikukrydd
  • ¼ tsk. cayenne
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 1 dós pintobaunir
  • 2 dl maísbaunir
  • handfylli af rifnum osti
  • avokadó
  • ferskt kóriander

Aðferð:

  1. Hitið olíu á pönnu við miðlungsháan hita og mýkið lauk og chillí.
  2. Hækkið hitann og bætið nautahakkinu á pönnuna. Steikið hakkið þar til fulleldað og kryddið með kryddunum.
  3. Bætið hökkuðum tómötum, baunum og maísbaunum á pönnuna og látið sjóða saman við vægan hita í um 10 mínútur.
  4. Stráið rifnum osti yfir og látið bráðna undir loki.
  5. Berið fram beint af pönnunni.
mbl.is/Svava Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert