Bragðbesti ketó-kjúllinn í dag

Fljótlegt og gott, akkúrat það sem við viljum.
Fljótlegt og gott, akkúrat það sem við viljum. mbl.is/Eazypeazymealz.com

Ertu til í bragðmikinn og girnilegan kjúklingarétt sem er sáraeinfaldur í framkvæmd? Hér er undirstaðan nánast sú sama og þegar við útbúum vefjur á mexíkóska vísu, nema rétturinn er borinn fram í skál og því engin kolvetni eins og fylgja sjálfum vefjunum. Ef þú vilt fara í enn einfaldari útgáfu af réttinum en við gefum upp hér getur þú keypt tilbúinn kjúkling og jafnvel guacamole.

Bragðbesti ketó-kjúllinn í dag

  • 700  g kjúklingabringur
  • 1 msk. ólífuolía
  • 1½ bolli enchilada-sósa
  • ½ bolli kjúklingakraftur
  • Grænt chili eftir smekk
  • ¼ bolli rauðlaukur
  • 350 g blómkál

Til skrauts:

  • 2 msk. smátt skorinn kóríander
  • 1 avocadó
  • 4 msk. rifinn cheddar-ostur
  • Salsa

Aðferð:

  1. Hitið olíu á pönnu á meðalhita og steikið kjúklinginn á öllum hliðum.
  2. Setjið enchilada, kjúklingakraft, grænt chili og rauðlauk út á pönnuna og látið suðuna koma upp. Látið malla á meðalhita undir loki í 10 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  3. Takið kjúklinginn af pönnunni og rífið hann niður. Setjið hann svo aftur út á pönnuna á meðalhita í 5 mínútur.
  4. Rífið blómkál smátt niður með rifjárni og setjið í skál. Setjið kjúklingablönduna yfir blómkálið og toppið með kóríander, avocado, cheddar og salsa.
Allt á einni pönnu, því lítið uppvask sem fylgir þessum …
Allt á einni pönnu, því lítið uppvask sem fylgir þessum rétti. mbl.is/Eazypeazymealz.com
mbl.is/Eazypeazymealz.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert