Ómótstæðileg skyrkaka Evu Laufeyjar

mbl.is/Eva Laufey

Það er eiginlega ekkert annað hægt að segja um þessa dásemd en halelúja! Þvílík fegurð á einum diski og svona líka gómsæt.

Það er ekki hægt annað en að skella í þessa dásemd um helgina.

Matarbloggið hennar Evu Laufeyjar er hægt að nálgast HÉR.

Jarðarberjaskyrkaka með ferskum berjum

Kexbotn: 

  • 1 pakki LU Bastogne-kex (eða annað gott kex)
  • 100 g brætt smjör

Aðferð:

  1. Setjið kex og brætt smjör í matvinnsluvél og maukið, þrýstið kexblöndunni á botninn og upp með börmunum á bökunarforminu (ég notaði nokkur lítil en yfirleitt nota ég form í stærð 24x25cm).
  2. Setjið botninn í kæli á meðan þið útbúið fyllinguna.

Skyrfylling: 

  • 500 g jarðarberjaskyr
  • 350 ml rjómi, þeyttur
  • 2 msk. flórsykur
  • 1 tsk. vanillusykur eða fræ

Fersk blönduð ber til skrauts

Aðferð:

  1. Þeytið rjóma og blandið skyrinu saman við ásamt flórsykri og vanillu.
  2. Hellið skyrfyllingunni í formið og skreytið með ferskum berjum.
  3. Kælið í 1-2 klst. ef þið viljið að kakan sé svolítið stíf annars má auðvitað bera hana strax fram. Svo má auðvitað útbúa kökuna degi áður en þið ætlið að bera hana fram – það getur stundum verið algjör snilld upp á það að spara tíma fyrir matarboð. 
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert