Drakk tekíla úr tösku á rauða dreglinum

Awkwafina lék nýverið í myndinni The Crazy Rich Asians.
Awkwafina lék nýverið í myndinni The Crazy Rich Asians. mbl.is/Cosmopolitian.com

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Óskarsverðlaunahátíðin var um helgina. Algjör draumur fyrir marga að fylgjast með hvað stjörnurnar fá að borða, hver hannaði dressið og hverjir fara með Óskarinn heim.

Leikkonan Nora Lum, sem gengur undir nafninu Awkwafina, mætti í glitrandi dressi með litla tösku undir hendinni í stíl. Á meðan hún stóð á rauða dreglinum sást til hennar lyfta töskunni upp og fá sér sopa. Aðspurð sagðist hún vera með tekíla í pela sem væri eins og taska, svona til að róa aðeins taugarnar, og fór ekkert leynt með það.

Hér sést til hennar súpa tekíla úr töskunni.
Hér sést til hennar súpa tekíla úr töskunni. mbl.is/WWD.Twitter
Allt í stíl, dressið og taskan.
Allt í stíl, dressið og taskan. mbl.is/Christopher Polk/REX/Shutterstock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert