Besta hvítlauksbrauð í heimi

Hversu girnilegt hvítlauksbrauð?
Hversu girnilegt hvítlauksbrauð? mbl.is/Eazypeazymealz.com

Ertu til í hvítlauksbrauð löðrandi í osti sem fær þig til að gleyma öllu öðru? Uppskriftir að hvítlauksbrauðum eru misjafnar og flestar innihalda eingöngu hvítlauk og ost á meðan aðrir bæta við kryddum á við oregano og basilikum. Þetta er allt spurning um réttu samsetninguna og hana höfum við hér. Undirstaðan er þó alltaf gott brauð, svo um að gera að velja það vel.

Besta hvítlauksbrauð í heimi

  • ¾ bolli mjúkt smjör
  • 1 msk. hvítlauksrif, marið
  • 1 tsk. hvítlaukssalt
  • 1 msk. steinselja, smátt söxuð
  • ½ bolli parmesan
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • ½ bolli rifinn ostur
  • Gott brauð

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°.
  2. Blandið saman smjöri, hvítlauk, hvítlaukssalti, steinselju og parmesan osti.
  3. Skerið brauðið í sneiðar og smyrjið með smjörinu.
  4. Setjið á bökunarpappír á bökunarplötu.
  5. Stráið smá papríkukryddi yfir.
  6. Bakið í 10 mínútur þar til smjörið er bráðið og brauðið byrjað að ristast.
  7. Takið úr ofninum og stráið rifnum osti yfir. Stillið ofninn á grill og grillið brauðið í 1-2 mínútur. Fylgist með brauðinu þegar það fer inn á grillið svo það brenni ekki. Stráið steinselju yfir og berið fram.
Brauðið er skorið í sneiðar og smurt með blandaða smjörinu.
Brauðið er skorið í sneiðar og smurt með blandaða smjörinu. mbl.is/Eazypeazymealz.com
Brauðið er hitað í ofni og því næst kemur rifinn …
Brauðið er hitað í ofni og því næst kemur rifinn ostur ofan á og fer aftur inn í ofn. mbl.is/Eazypeazymealz.com
Gjörið svo vel!
Gjörið svo vel! mbl.is/Eazypeazymealz.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert