Fyrsta íslenska 100% súkkulaðið

Súkkulaðið heitir Peru og er 100% súkkulaði sem þýðir enginn sykur, mjólk, ávextir, bragðefni eða hnetur. Súkkulaðið er afar sérstakt á bragðið og ólíkt því sem við eigum að venjast en því er best lýst sem dökku og áköfu.

„Þegar unnið er með 100% súkkulaði er mikilvægt að velja kakóbændur sem leggja alúð í vinnu sína. Enn mikilvægara er að vanda til verka við ristun baunanna þar sem hún spilar lykilatriði í hreinu súkkulaði. Við ristuðum baunirnar lengi við lágan hita,“ útskýrir Kjartan Gíslason, annar stofnenda Omnom.

Peru 100% er einstakt súkkulaði búið til úr hinni merkilegu hvítu kakóbaun gran nativo blanco, sem uppgötvaðist fyrir tilviljun árið 2008 í norðurhluta Perú en þá hafði hún verið hulin í meira en öld. Þetta þótti mikill fengur enda er gran nativo blanco-baunin talin einstök bæði hvað varðar lit og bragðeiginleika.

Að sögn forsvarsmanna Omnom er bragði Peru 100% best lýst sem bitrum keimi af ristuðum valhnetum, örlitlum tóni af papæja- og sítrusávöxtum og flauelsmjúkri áferð í lokin.

„Við höfum unnið að þróun á góðu 100% súkkulaði í mörg ár en þetta er í fyrsta skipti sem við gefum út slíkt súkkulaði,“ segir Kjartan og bætir við: „Þegar við fengum baunirnar í hendurnar hófumst við handa í tilraunaeldhúsinu að vinna með þær en komumst fljótlega að því að þær nutu sín best einar og sér – án allra viðbóta“. Peru 100% er einungis til í takmörkuðu upplagi og lofar Omnom einstakri bragðupplifun; ákafri, dökkri og 100%.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert