Svona er best að hreinsa sveppi

Sveppir eru frábært „krydd“ í matargerðina.
Sveppir eru frábært „krydd“ í matargerðina. mbl.is/Foodrevolution.org

Hvar værum við stödd í matargerðinni ef við hefðum ekki sveppi? Þessa litlu skrítnu hatta sem bragðbæta svo margan mat. En veistu hvernig best er að hreinsa sveppi sem liggja í moldarbaði?

Ef þú hefur verið að skola sveppi undir köldu vatni áður en þú skerð þá og steikir kannastu eflaust við að sveppirnir eiga til að bólgna út – því þeir sjúga vatnið í sig. Besta ráðið til að hreinsa sveppi er að nota hveiti, því hveitið sýgur moldina í sig sem er ótrúlegt en satt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert