Blautur draumur matgæðingsins á baneitruðum bakka

mbl.is/María Gomez

Hver elskar ekki djúpsteiktan camembert? Nú réttu um það bil 90% þjóðarinnar upp höndina þannig að við getum haldið áfram með þessa tímamótafrétt/uppskrift/snjallhugmynd.

Hér gefur að líta ostabakka sem lítur eiginlega meira út eins og blautur draumur matgæðingsins enda er þetta eiginlega bara rosalegt.

Það er María Gomez á Paz.is sem á heiðurinn að þessari svallveislu bragðlaukanna sem er líka svo falleg að ég er viss um að það eru einhverjir tárfellandi í þessum töluðu orðum.

mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez

Ostabakki Maríu

„Já, þið lásuð rétt en þessi ostur er bara hreint út sagt truflað góður. Djúpsteiktur camembert eða gouda, bara aðeins of gott. Og nú gerist það bara betra því maður þarf ekki einu sinni að sjá um djúpsteikinguna á honum sjálfur. Það eina sem þarf að gera hér er að stinga ostinum inn í ofn í einungis 15 mínútur og þá er hann klár. Ég get lofað að hann er nákvæmlega eins og ef maður hefði steikt hann sjálfur, stökkur að utan og mjúkur að innan,“ segir María um þessa snilld en osturinn frá Alpenhain fæst í tveimur tegundum, annars vegar í heilum camembert, sem ég myndi bera fram sem máltíð og svo sem smábitar, sem er blanda af gouda og camembert, og fullkominn á ostabakkann að sögn Maríu.

Hér ætla ég að gefa ykkur uppskrift að salati sem ég bar fram með stóra camembert-ostinum og svo hugmynd að ostabakka

Í salatið með camembert-ostinum þarf:

  • Kálblanda með klettasalati er best finnst mér
  • Jarðarber, brómber og vínber (getið líka valið bara eina tegund af þessum)
  • Piccolo-tómata eða cherrie
  • Svartar ólífur
  • 1/2 bolli hnetur að eigin vali og fræ
  • 1 msk. hunang
  • gróft sjávarsalt

Aðferð

  1. Hellið kálinu í skál og skerið tómatana, jarðarberin og vínberin niður í smærri bita
  2. Setjið út á salatið ásamt ólífunum
  3. Ristið svo fræhnetublönduna á pönnu og setjið eina msk. hunang út á þannig það þeki vel allar hnetur
  4. Takið af pönnunni og leggið á smjörpappa og saltið yfir með grófu salti. Setjið í frysti í örlita stund eða þar til orðið kalt og hart
  5. Skerið svo hnetublönduna smátt niður og setjið á salatið
  6. Gott er að hella ögn af góðri ólífuolíu yfir salatið og salta ef vill en má sleppa
  7. Berið svo ostinn fram með salatinu góða, kexi eða snittubrauði og sultu. Mæli með Den Gamle Fabrik-sultunum

Hugmynd að ostabakka

  • Ostabitarnir frá Alpenhain
  • Pistasíuhnetur saltar án kjarna og hunangsristaðar jarðhnetur eru rosa góðar með ostum
  • Ber eins og bláber, brómber, jarðarber og vínber passa vel með ostunum
  • Gráfíkjur
  • 70% súkkulaði en það er rosa gott með ostum
  • Sultur, bestar frá Den Gamle Fabrik
  • Svo er auðvitað alltaf gott að hafa pylsur eins og drekapylsur, pepperoni og hráskinku
  • Gott kex eða snittubrauð
mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert