Bakaði legköku til að heiðra fæðingu dóttur sinnar og vann

mbl.is/sjáskot

Ekki er nú öll vitleysan eins en þetta er mögulega með því fyndnara sem sést hefur á öldum ljósvakans. Í Bretlandi var skemmti- og söfnunarþátturinn Stand Up For Cancer sýndur og meðal keppenda var Russell Brand sem þykir með fyndnari mönnum.

Meðal annars var boðið upp á bökunareinvígi en þar bar Brand sigur úr býtum með köku sem átti að minna á leggöng eiginkonu hans og heiðra fæðingu seinni dóttur þeirra sem fæddist í fyrra. Kakan er algjörlega snargalin og óborganlega fyndin  en fyndnastur er sjálfsagt Brand þegar hann útskýrir gjörninginn og ber sigur úr býtum.



mbl.is/sjáskot
mbl.is/sjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert