Fiskréttur flugmannsins

mbl.is/María Gomez

Ferskur, bragðmikill, spennandi og ofboðslega góður eru orð sem við viljum svo sannarlega tengja við mat og þessi fiskréttur lofar þessu öllu.

Það er María Gomez á Paz.is sem á þessa uppskrift, eða svona næstum því en uppskriftina fékk hún hjá Rúnu vinkonu sinni sem er augljóslega mjög lunkin í eldhúsinu.

„Hér er um að ræða dásamlega uppskrift að asískum fiskrétti sem er bara aðeins of góður. Uppskriftina fékk ég hjá elskulegri vinkonu minni Rúnu sem er bæði gift flugmanni og á son sem er flugmaður. Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá syni Rúnu og það skil ég mætavel, en hann er akkúrat það sem ég var að leitast eftir. Nýr og skemmtilega öðruvísi með alveg nýju bragði. Hann er í senn ferskur, bragðmilkill og alveg ofboðslega góður. Hér breytti ég engu nema einu pínulitlu smáatriði sem er að gefa ykkur val um hvort þið notið ferskan kóríander eða vorlauk í staðinn. Ég bara get alls ekki borðað ferskan kóríander en notaði vorlaukinn og það kom rosalega vel út,“ segir María um þennan rétt sem allir verða að prófa.

mbl.is/María Gomez

Fiskréttur flugmannsins

Fyrir 4-6

  • 800 gr. lax eða bleikja (ég nota bleikju finnst hún betri)
  • 2 msk. matarolía
  • 1 askja sveppir
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 4 cm bútur fersk engiferrót
  • 2 rauð chili-aldin
  • Börkur af 1-2 límónum
  • 1 búnt ferskur kóríander eða búnt af vorlauk, þá nota ég blöðin efst á honum þar sem er grænast
  • 1 dl ristaðar kasjúhnetur
  • Svartur pipar

Sósan:

  • 1 dl Teriyaki Marinade-sósa frá Blue Dragon
  • 1 msk. fiskisósa frá Blue Dragon
  • 1 msk. matarolía (ólifuolía frá Rapunzel er mjög góð)
  • safi úr 1-2 límónum (ég notaði eina og hálfa)

Aðferð:

  1. Þar sem er svo gott að bera þetta fram með hrísgrjónum er best að byrja á að setja þau í pott og sjóða
  2. Hitið svo ofninn í 180-190 C°blástur
  3. Takið svo roðið af fiskinum og leggið til hliðar meðan þið gerið sósuna góðu, með því að blanda öllum innihaldsefnum hennar saman og hræra með písk
  4. Hellið nú 2 msk. matarolíu út á eldfast mót og leggið flökin ofan á, hellið svo eins og 1/3 sósunnar yfir fiskinn og látið standa meðan þið skerið niður grænmetið
  5. Sveppir eru skornir í sneiðar, meðan restin af grænmetinu er gróft saxað m.a. hvítlaukurinn. Skerið engiferrótina og chilipiparinn smátt og fræhreinsið piparinn nema ef þið viljið hafa þetta mjög sterkt
  6. Blandið saman öllu grænmetinu í skál og raspið yfir berki úr 2 límónum
  7. Setjið þetta svo allt saman ofan á fiskinn og hellið restinni af sósunni yfir og kryddið vel með svörtum pipar
  8. Setjið inn i heitan ofninn og bakið í 20-25 mínútur
  9. Berið fram með grjónum og kasjúhnetum sem er sáldrað yfir réttinn
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert