Albert mætti í kaffiboð til Gerðar G. Bjarklind

mbl.is/Albert Eiríksson

„Útvarpskonan góðkunna Gerður G. Bjarklind tók vel í að baka tertu fyrir bloggið. Þegar ég kom heim til þeirra hjóna voru terturnar tvær, báðar einstaklega góðar og fallegar eins og við var að búast af jafn listrænni konu og Gerður er, en glerlist hennar og jólakortin eru fræg fyrir listfengi og natni. Úti á svölum var ræktunin að fara af stað, enda vorið á næsta leiti. Hér er sko ekki komið að tómum kofunum! Svo fengum við að hitta hina vösku nágrannakonu hennar, Ingibjörgu Elíasdóttur, sem starfaði í fjármálaráðuneytinu í 40 ár, fyrst með Eysteini Jónssyni og síðast með Friðriki Sophussyni!" segir Albert Eiríksson um þessa vel heppnuðu heimsókn til hinnar einu sönnu Gerðar G. Bjarklind og uppskriftin er ekki af verri endanum en matarbloggið hans Alberts er hægt að nálgast HÉR.

mbl.is/Albert Eiríksson

Marengsterta Margrétar

  • 5 eggjahvítur
  • 2 dl hvítur sykur

Þeytið vel og lengi saman, þar til er orðið létt
Klæðið bökunarplötur með smjörpappír og bakið tvo botna á 150°C í um 50 mín. Kælið.

Á milli:

  • 1/2 l rjómi
  • 1 dós ferskjur

Þeytið rjómann, takið svolítið frá til skrauts, og blandið helmingnum af ferskjunum saman við. Setjið annan marengsbotninn á tertudisk, setjið ferskjurjómann ofan á og loks hinn marengsinn ofan á. Skreytið með restinni af ferskjunum og þeytta rjómanum.
Best er að setja á kökuna um morgun þess dags, sem veizlan er. Kökuna er allt í lagi að baka tveim dögum áður

Gerður G. Bjarklind og Albert Eiríksson.
Gerður G. Bjarklind og Albert Eiríksson. mbl.is/Albert Eiríksson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert