Má hringja seint á kvöldin? En snemma á morgnana?

mbl.is/Helena

„Það er kunnara en frá þurfi að segja að símarnir eru að verða eins og framlenging af okkur, þeir eru u.þ.b. að gróa við okkur,“ segir Albert Eiríksson en eins og við vitum þá eru fáir betri að sér í almennum mannasiðum en hann. „Hver og einn setur sín mörk varðandi tilkynningar í símana og hversu mikla truflun hann leyfir frá þeim. Við verðum öll að muna eftir að taka hringinguna af símum þar sem hún veldur truflun eins og í leikhúsi, á tónleikum, veitingahúsum og í kirkjum.“

Albert segir að þumalputtareglan varðandi hringingar í aðra síma sé einföld. Bannað sé að hringja eftir klukkan 10 á kvöldin og fyrir klukkan 9 að morgni. Frá þessu séu auðvitað undantekningar. Ef mikið liggur við þá metum við aðstæður í hvert sinn.

Það er líka gott að hafa bak við eyrað að við hringjum ekki í B-fólkið snemma um helgar „bara til að spjalla“.

Þar höfum við það. Fyrir þá sem þurfa að frekari kennslu í almennri háttvísi þá er hið stórskemmtilega blogg hans Alberts HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert