Kjúklingabringur fylltar með mexíkóosti og öðru gúmmelaði

mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Hvílík endemis gleði og hamingja sem fylgir þessum dásemdarrétti sem er að sögn uppskriftarhöfundar fylltur með hreinræktuðu gúmmelaði. 

Það er engin önnur en Berglind Guðmunds á Gulur, rauður, grænn og salt sem á þessa snilldar gúmmelaðiuppskrift og þá getum við gulltryggt að hún er góð. 

Kjúklingabringur fylltar með mexíkóosti og öðru gúmmelaði

  • 4 kjúklingabringur
  • 1 stór pakki beikon
  • 250 g sveppir, smátt saxaðir
  • 1 rauðlaukur, smátt saxaður
  • 1 rauð paprika, smátt söxuð
  • 1 mexíkóostur, skorinn í litla bita
  • 4-6 bitar sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
  • 250 ml rjómi
  • 1 msk. kjúklingakraftur, t.d. Oscars, salt og pipar

Aðferð:

  1. Takið 8 stk. beikonsneiðar frá og geymið.
  2. Saxið 6-8 sneiðar af beikoni smátt og steikið á pönnu. Þegar það er orðið stökk bætið papriku, sveppum og lauk saman við og steikið. Þegar laukurinn er farinn að mýkjast bætið sólþurrkuðum tómötum og osti saman við.
  3. Steikið þar til osturinn er farinn að bráðna. Skerið vasa í kjúklingabringurnar og setjið hluta af fyllingunni þar í.
  4. Lokið og vefjið tveimur beikonsneiðum utan um hverja bringu.
  5. Setjið í eldfast mót og í 180°C heitan ofn í 40 mínútur eða þar til eldaðar í gegn. Setjið rjóma og kjúklingakraft saman við restina af fyllingunni.
  6. Hitið við vægan hita en látið ekki sjóða. Smakkið til með salti og pipar.
  7. Takið bringurnar úr ofninum og hellið rjómablöndunni í fatið. Berið fram með einföldu salati og hrísgrjónum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert