Töfrahúsráð Mörthu Stewart

Martha Stewart veit hvað hún syngur er kemur að matargerð.
Martha Stewart veit hvað hún syngur er kemur að matargerð. mbl.is/ffolas/shutterstock; s_bukley/shutterstock

Fólk er mishrifið af því að meðhöndla hvítlauk þar sem lyktin festist á fingrunum svo ekki sé minnst á hýðið sem situr fast á lauknum eða byrjar að fljúga um allt eldhúsið.

Martha Stewart var í þættinum Today Show nú á dögunum þar sem hún deildi með áhorfendum aðferð hvernig best væri að flysja hvítlauk án þess að snerta hann. Það eina sem þú þarft að draga fram eru tvær skálar!

Þú einfaldlega skellir hvítlauknum í aðra skálina og leggur hina ofan á og byrjar að hrista þær fram og til baka. Hér reynir örlítið á upphandleggina, en það má líta á þetta sem aukaæfingu fyrir suma.

Með því að kastast fram og til baka í skálinni nuddast hýðið og losnar af. Þetta er að sjálfsögðu ekki eina aðferðin til að losa hýðið af lauknum, en er minna subbuleg að mati Mörthu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert