Plokkfiskurinn sem fullkomnar daginn

mbl.is/Fiskur í matinn
Hér gefur að líta einfalda en um leið skothelda uppskrift að ómótstæðilegum plokkfiski sem er fullkominn á degi sem þessum.
Plokkfiskur
  • 800 g þorskur/ýsa
  • ½ laukur, skrældur og saxaður
  • ½ teningur kjúklingakraftur
  • 2 stk. lárviðarlauf
  • 50 g smjör
  • 300 g kartöflur, skrældar og skornar í teninga
  • ½ tsk. hvítur pipar
  • 1 tsk. salt
  • 3 msk. hveiti
  • 200 ml mjólk

Aðferð:

Setjið fiskinn ásamt lauknum og lárviðarlaufunum í pott með köldu vatni og fáið upp suðu, takið síðan af hitanum og setjið til hliðar. Bræðið smjör og bætið hveitinu út í og hrærið vel saman. Hellið mjólkinni út í og setjið með 100 ml af vatninu sem fiskurinn stendur í. Bætið kjúklingakraftinum, saltinu og piparnum út í og fáið upp suðu eða þar til sósan er orðin vel þykk. Sigtið fiskinn (passa að hafa laukinn með) og bætið út í sósuna ásamt kartöflunum og blandið vel saman. Smakkið til með salti og pipar.

Höfundur uppskriftar er Oddur Smári Rafnsson en uppskriftin kemur frá Fiskur í matinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert