Beikonvafðar kjúklingabringur með dásamlegri fyllingu

mbl.is/Tinna Alalvis

Á degi sem þessum er fátt betra en fylltar kjúklingabringur sem búið er að vefja í beikon. Flóknara er það nú ekki.

Það er engin önnur en Tinna Alavis sem á þessa uppskrift.

Beikonvafðar kjúklingabringur með dásamlegri fyllingu

Fylling:

  • 50 g smjör
  • 3 laukar
  • 150 g beikon (skorið í bita)
  • 6 hvítlauksrif
  • ½ blaðlaukur
  • 6-7 sveppir
  • 30 g salvía (smátt söxuð)
  • smá kreista af sítrónusafa
  • 100 g brauðteningar
  • 80 gr. furuhnetur
  • 30 g steinselja (smátt söxuð)
  • ½ poki spínat
  • 500 ml rjómi

Aðferð við að gera fyllinguna:

Smjör sett á pönnu & laukur brúnaður í 7 mínútur, þá er beikoni bætt saman við og látið malla í aðrar 7 mínútur. Blaðlauk, hvítlauk, salvíu, sveppum, sítrónusafa, furuhnetum og brauðteningum er næst bætt saman við og látið malla í 3 mínútur. Þá er komið að því að bæta spínati og steinselju út í ásamt rjómanum. Fyllingin er látin malla í 5 mínútur.

Kjúklingur:

  • 50 g smjör til steikingar
  • 4-6 kjúklingabringur
  • beikon sneiðar til þess að vefja utan um bringurnar

Aðferð:

Stillið ofninn á 200°C og setjið smjörið á pönnuna, bringurnar eru steiktar í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Næst eru bringurnar skornar í tvennt, fyllingin sett innan í og beikoninu vafið utan um (gott að nota tannstöngla til þess að halda beikoninu). Þá er komið að því að setja bringurnar í eldfast mót með álpappír yfir og inn í ofn í 40 mínútur. Mér finnst gott að taka álpappírinn af síðustu 15 mínúturnar til þess að beikonið verði stökkt. 

Meðlæti – Sósan:

  • 500 ml rjómi
  • 400 ml hvítvín
  • 3 skalottlaukar
  • 2 msk. smjör
  • 1 kjúklingakraftur
  • salt og pipar
  • ásamt smá sósulit

Aðferð:

Laukurinn er steiktur upp úr smjöri í stutta stund og hvítvíni bætt út í (hitinn lækkaður rétt á meðan). Þá er kjúklingakrafturinn settur út í sósuna ásamt rjómanum. Látið malla í nokkrar mínútur og smakkið til með salti og pipar. Ef þið viljið hafa sósuna brúnni þá er minnsta mál að setja smá sósulit saman við.

Meðlæti – Sætar kartöflur:

Kartöflurnar eru skrælaðar, skornar í sneiðar og settar í eldfast mót. Olífuolíu er hellt yfir og kryddaðar með salti og pipar.

mbl.is/Tinna Alalvis
mbl.is/Tinna Alalvis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert