Svartur á leik

Þetta er alveg ótrúlega elegant!
Þetta er alveg ótrúlega elegant! mbl.is/Design by - Julian O'hayon | Anckor

Hefur þú velt því fyrir þér ef Bónuspokar væru framleiddir í öðrum lit en gulu með bleiku svíni? Myndi það þykja fágaðra að ganga um með svartan bónuspoka með mynd af gráu svíni í stað þess sem við þekkum í dag? Þetta er mjög áhugaverð pæling.

Við rákumst á myndir á Facebook-síðu Architecture & Design þar sem þessi hugmynd er tekin skrefinu lengra og við sjáum til að mynda McDonalds-franskar og kaffidrykki í svörtu umhverfi. Og við verðum að viðurkenna að það lítur bara ansi vel út.

mbl.is/Design by - Julian O'hayon | Anckor
mbl.is/Design by - Julian O'hayon | Anckor
mbl.is/Design by - Julian O'hayon | Anckor
mbl.is/Design by - Julian O'hayon | Anckor
mbl.is/Design by - Julian O'hayon | Anckor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert