Er hægt að elda beikon í örbylgjuofni?

Þorkell Þorkelsson

Þetta er mögulega ein mikilvægasta spurning síðari ára. Margir telja sig vita svarið en það eru allar líkur á að þeir hafi kolrangt fyrir sér. 

Spurt er einfaldrar spurningar. Er hægt að elda beikon í örbylgjuofni?

Svarið er já.

Það verður aldrei nákvæmlega eins og steikt á pönnu en það er engu að síður hægt. Byrjaðu á að elda það í fjórar mínútur og bættu við tíma eftir þörfum. 

Mundu svo að það verður stökkara þegar það kólnar ögn.

Ekki stafla því heldur raða því á disk og venjulegur diskur dugar - það þarf enga sérstaka grind. 

Bon appetit!

mbl.is/Thecookierookie.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert