Heilhveitibaka með sætum kartöflum og geitaosti

Ein sú girnilegasta á netinu í dag.
Ein sú girnilegasta á netinu í dag. mbl.is/Spisbedre.dk

Það er eitthvað töfrandi við þessa samsetningu á böku. Og það er svo gaman að brjóta upp hversdagsleikann með böku sem bragðast upp á tíu sem þessi. Hér með sætum kartöflum, grænkáli og geitaosti.

Heilhveitibaka með sætum kartöflum og geitaosti

  • 100 g hveiti
  • 100 g heilhveiti
  • 1 tsk. salt
  • 100 g kalt smjör
  • 4 msk. ískalt vatn

Sætar kartöflur:

  • 500 g sætar kartöflur
  • 1 msk. ólífuolía
  • Salt

Fylling:

  • 1 rauðlaukur
  • Handfylli rósmarín
  • 1 msk. ólífuolía
  • 4 grænkálsblöð
  • 2 msk. balsamikedik
  • Salt og pipar
  • 5 egg
  • 1 dl mjólk
  • ½ tsk. salt
  • 110 g geitaostur

Aðferð:

  1. Blandið hveitunum og salti í skál. Skerið smjörið í teninga og myljið það í deigið. Bætið kalda vatninu út í og hrærið í með gaffli (bætið við við vatni ef deigið er ekki nógu mjúkt).
  2. Hnoðið deigið á borði og pakkið því svo inn í plastfilmu og setjið í kæli í 30 mínútur.
  3. Hitið ofninn í 175°C. Skolið og skerið kartöflurnar í litla teninga og dreifið á bökunarplötu á bökunarpappír.
  4. Veltið þeim upp úr olíu og kryddið með salti. Bakið í 15 mínútur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert